mobile navigation trigger mobile search trigger
27.05.2024

Sjómannadagurinn í Fjarðabyggð

Að venju verður margt um að vera í Fjarðabyggð í tilefni af sjómannadeginum. Hér að neðan má sjá hátíðardagskrá sem fram fer á Eskifirði, á Norðfirði og á Fáskrúðsfirði.

Sjómannadagurinn í Fjarðabyggð

Hátíðarhöld Sjómannadagsins á Eskifirði

Fimmtudagurinn 30. maí

Fjör á Eyrinni

16:00-18:30 Siglingaklúbbur Austurlands leyfir gestum að prufa kajaka, seglbáta og fl.
Björgunarsveitin Brimrún verður með báta til að leyfa börnum að fara með ferð um fjörðinn

Grillaðir Fossburgers handa öllum í boði Eskju

Sjósund fyrir þá sem þora og heiti potturinn á eftir fyrir sundgarpana

22:00 Pubquiz í Randulfs - opið til 01:00, Eddi Grétars sér um.

Föstudagurinn 31. maí

18:00-20:00 Sundlaugadiskó og froðupartý
 (Allir að mæta með góða skapið, uppblásnu dýnurnar og sólstólana)

** Fullorðnir verða að koma í fylgd með börnum/unglingum **

22:00 Andri Bergmann, Siggi Þorbergs og Valli - sjötta barnið, halda uppi fjörinu í Randulffs Sjóhúsi (frítt inn)
Húsið opið til 01:00 

Laugardagurinn 1. júní

11:00 Dorgveiðikeppni á bæjarbryggjunni (gömlu frystihúsbryggjunni) verðlaun fyrir stærsta, ljótasta og furðulegasta hlutinn.
(skylda er að vera í vesti og í fylgd með fullorðnum, vesti verða á staðnum)

12:00 – 17:00 Þrautakeppni og afþreyingar á bæjarbryggjunni, þar sem hægt verður að fara í þrautabrautir, koddaslag, bardagahring, bubblubolta og fl.

17:00 – 20:00 Útitónleikar í boði Eskju á túninu með Helga Björns, Eyjólfi Kristjáns, Karitías Hörpu, Stebbi Jak, hljómsveit Jón Hilmars og barnahljómsveitum, einnig mun Greipur skemmta gestum.
Gestum boðið uppá fría hamborgara og pylsur (ath. Af gefnu tilefni, að ef sölutjöld eru á svæðinu, þá er sá matur ekki frír)

Heima í stofu tónleikar í garðinum hjá Valla og Elínu við hliðina á grunnskólanum ** Frír aðgangur **
 20:30 – 21:30 Andri Bergmann
 21:30 – 22:30 Eyjólfur Kristjánsson
 22:00 Valhöll opnar
 00:00 – 03:00 Dansleikur með Helga Björns, Stebba Jak, Karitas Hörpu og hljómsveit Jón Hilmars …   ** Frír aðgangur **  18+

Sunnudagurinn 2. júní

11:00 Sjómannamessa í Eskifjarðarkirkju

12:00 Athöfn við minnisvarðann um drukknaða sjómenn  - Sjómaður heiðraður
Ragnar Sigurðsson formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar fer með hátíðarræðu

13:00 – 17:00 Fjölskyldudagskrá á túninu, frítt í hoppukastala
Lína Langsokkur og Ingo töframaður skemmta krökkunum

14:00 Bílaklúbbur Austurlands sýnir bíla sína og tæki fyrir ofan Eskjutúnið. 

15:00 - 17:00 Slysavarnarfélagið með kaffiveitingar í Valhöll í boði Eskju

Sölutjöld velkomin alla helgina, hafið samband í gegnum facebook síðu Sjómannadagurinn á Eskifirði fyrir nánari upplýsingar. 

Nánari upplýsingar um dagskrá verður kynnt hér á Facebook síðunni Sjómannadagsins

Styrktaraðilar Sjómannadagsins eru Eskja og Hafnarsjóður Fjarðabyggðar

Hátíðarhöld Sjómannadagsins á Norðfirði

Fimmtudagur 30. maí

11:45-14:00 Pizzahlaðborð á Hildibrand

14:00 Beituskúrinn opinn

18:30 Pizzahlaðborð í Hotel Capitano

18:30 Valhöll Eskifirði; Konur, draumar og brauð – Nesbær Kaffihús - heimildarmynd

19:30-22:00 BRJÁN opnar og sýnir nýja aðstöðu í Tónspili; nýir og fyrrverandi félagar sérstaklega velkomnir. Tónlistaratriði af fingrum fram.

22- Einar Ágúst í Beituskúrnum

Föstudagur 31. maí

10:00 Miðbærinn skreyttur og fánar dregnir að húni

11:45-14:00 Hádegishlaðborð á Hildibrand

14:00-03:00 Beituskúrinn í fullri drift.

21:00 Jónas Sig og hljómsveit, gestahljómsveit Chögma. Miðaverð 3000 og rennur óskiptur í nýtt tónlistarhús Brján

23:00- Doddi litli, í Beituskúrnum                       

Laugardagur  1. júní

kl.10:00-12:00   Hópsigling Norðfirska flotans – allir velkomnir - talsamband á rás 12.

kl.10:00-17:00   Nesbær kaffihús – góðgæti að hætti hússins

kl.11:30-13:30   „Bröns“ í Hotel Capitano

kl.12:00-            Beituskúrinn í fullri drift.

kl.14:00             Kappróður – Hoppikastalar á bryggjunni

kl.19:00-            Hátíðarkvöldverður sjómanna á Hildibrand, skráning á hildibrand@hildibrand.is

kl.23.00-03:00  Stórdansleikur með Stjórninni og Stefáni Hilmars  4000 kr inn og allur aðgangseyrir rennur beint til björgunarsveitar Gerpis.    

Sunnudagur   2.júní

09:30 Skip og bátar draga íslenska fánann að húni –bæjarbúar flaggi sem víðast.

10:00 Sjómannadagsmót GN og Gjögurs á Norðfjarðarvelli

11:00 Dorgveiðikeppni 12 ára og yngri á Bæjarbryggjunni - pylsur að hætti Jóns Gunnars í boði SVN. Þáttakendur skulu vera í björgunarvestum og mæta vel fyrir tímann. Leikhópurinn Lotta að lokinni dorgveiði.

11-17 Heitt á könnunni hjá Siggu í Nesbæ

14:00 Hátíðarmessa í Norðfjarðarkirkju, heiðrun sjómanna

Séra Bryndís Böðvarsdóttir þjónar fyrir altari, Kór Norðfjarðarkirkju syngur undir stjórn Kaido Tani. Andri Snær flytur harmonikkutóna. Að messu lokinni verður blómsveigur lagður að minningarreit um óþekkta sjómanninn. 

14:30 -18:00 Kaffisala Gerpis að Nesi Allur ágóði rennur til björgunarstarfa sveitarinnar.

15:30 Glens og gaman við sundlaugina: 

  • Reiptog, koddaslagur og fleira, skráning hjá Dóra Sturlu. 8683513.
  • Verðlaunaafhendingar.

Hvetjum alla sem hlotið hafa heiðursmerki Sjómannadagsins til þess að bera það.

Sjómannadagsráð Neskaupstaðar og samstarfsaðilar:

Bjsv Gerpir, Haki, SÚN, SVN, Hildibrand, G. Skúlason og Hafnarsjóður Fjarðabyggðar.

Allar fyrirspurnir vinsamlegast sendar á  sjoradnes@gmail.com

Kaupið merki dagsins!

Hátíðarhöld Sjómannadagsins á Fáskrúðsfirði

Laugardagurinn 1. júní 

11:00 Sigling með Ljósafellinu í boði Loðnuvinnslunnar frá frystibryggjunni

Sunnudagurinn 2. júní

14:00 Sjómannadagsmessa í Fáskrúðsfjarðarkirkju

15:00 - 17:00 Sjómannadagskaffi í Skólamiðstöðinn, í boði Loðnuvinnslunnar sem slysavarnadeildin Hafdís stendur fyrir. 

Frétta og viðburðayfirlit