mobile navigation trigger mobile search trigger
12.06.2024

Fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps

Fulltrúar bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps komu saman í Fjarðabyggð þriðjudaginn 11. júní. Tilefni fundarins var árleg yfirferð sveitarfélaganna á sameiginlegum hagsmunamálum og samvinnuverkefnum. Sveitarfélögin eiga í samstarfi um uppbyggingu er varðar atvinnumál og fjölgun íbúa svo sem uppbyggingu á grænum orkugarði og vindorku því samhliða. Á fundinum var einnig rætt um mikilvæg samgöngumál og hvernig hægt sé að efla samstarf sveitarfélaganna enn frekar. 

Fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps

Í lok fundar var afgreitt sameiginleg ályktun sveitarfélaganna:

Fjarðabyggð og Fljótsdalshreppur skora á Alþingi að ljúka afgreiðslu mikilvægra mála sem bíða afgreiðslu þingsins. Uppbyggingaráform á Austurlandi þarfnast aðkomu stjórnvalda í formi lagasetninga og stefnumótunar. Full fjármögnuð verkefni á Austurlandi bíða afgreiðslu þingsins og hætta er á að uppbyggingin færist út fyrir landsteinana verði frekari dráttur á. Skiptir þar mestu máli að þingið afgreiði stefnu um uppbyggingu á vindorku á Íslandi ásamt því að tryggja að sveitarfélög fái eðlilegt afgjald af raforkuframleiðslu sem fram fer í þeim. Austurland áformar uppbyggingu á orkugarði sem mun gera fjórðunginn að miðstöð orkuskipta með framleiðslu á vetni til að knýja fiskiskip og fragtskip bæði innanlands og utan. Þessi áform kalla á að lagaumhverfið sé skýrt og innviðir til staðar til að þessi mikilvægi þáttur orkuskipta innanlands gangi eftir.  Þá gera sveitarfélögin ráð fyrir talsverðri húsnæðisuppbyggingu gangi áformin eftir og mun það styrkja samfélagið allt á Austurlandi

Þá ítreka  sveitarfélögin að þingið afgreiði önnur frumvörp sem varða hagsmuni sveitarfélaganna s.s. frumvarp um breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, frumvarp um lagareldi og að við endurskoðun búvörusamninga sem nú eru að hefjast verði lögð sérstök áhersla á stuðning við fámenn landbúnaðarsvæði.

Heimsókn í Kaldvík

Eftir sameiginlegan fund fulltrúa sveitarstjórna var siglt út í laxeldiskvíar Kaldvíkur og þær skoðaðar ásamt því að fá kynningu á starfsemi fyrirtækisins og framleiðslu. Kaldvík rekur sjókvíaeldi í Fjarðabyggð og er eitt öflugasta laxeldisfyrirtæki landsins. Á fyrsta ársfjórðuni var framleitt um 3986 tonn af laxi og er stefnan að auka framleiðsluna í 21.500 tonn fyrir árið 2024 samanborið við 4394 tonn árið 2023.

Að lokum var boðið til kvöldverðar í Randulffssjóhúsi á Eskifirði.

Fleiri myndir:
Fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps
Fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps
Fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps
Fundur bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps

Frétta og viðburðayfirlit