mobile navigation trigger mobile search trigger
10.06.2024

Hátíðardagskrá 17. júní í Fjarðabyggð

Fjarðabyggð heldur 17. júní hátíðlegan í samstarfi við íþróttahreyfinguna í Fjarðabyggð og fer hátíðardagskrá sveitarfélagsins fram til skiptis í hverjum bæjarkjarna. Hátíðardagskráin í ár fer fram við Salthúsmarkaðinn á Stöðvarfirði. 

Hátíðardagskrá 17. júní í Fjarðabyggð

Dagskrá 17. júní

12:20  - 12:45  Afhjúpun og vígsla á upplýsingaskiltum við Stöðvarkirkjugarð og um fornleifauppgröftinn við Stöð

13:00 – 13:15  Ávarp forseta bæjarstjórnar

13:15 – 13:30  Ávarp Fjallkonunnar - Margarette Sveinbjörnsdóttir

13:30 – 13:50 Tónlistaratriði með börnum úr tónlistarskólum Fjarðabyggðar.

                      Jónatan, trommuleikari úr Chögma ásamt Einari Erni og Kamillu taka nokkur lög.                   

13:30 – 16:00  Hoppukastalar fyrir börnin

13.30 – 16:00  Andlitsmálning og götulist með Skapandi sumarstörfum

13:30 - 14:00  Kaka í tilefni af 80 ára lýðveldisafmæli Íslands Lýðveldiskaka borin fram í boði forsætisráðuneytisins.

13:45 – 14:30  Grillaðar pylsur

13:30 – 15:00  Slökkvilið Fjarðabyggðar býður gestum að skoða nýjan slökkvibíl

14:00 – 15:00  Sápukúlufjör

15:30              Sköpunarmiðstöðin, listamenn bjóða í Open studio

17. júní kaffi á vegum félags eldri borgara verður í Grunnskólanum á Stöðvarfirði frá klukkan 14:00 – 16:00. 

Verð: 2000 kr. fyrir tólf ára og eldri, 1000 kr. fyrir 6 - 12 ára Frítt fyrir sex ára og yngri.

Fleira skemmtilegt á Stöðvarfirði

Ýmislegt áhugavert og skemmtilegt er að sjá og skoða á Stöðvarfirði og tilvalið að nýta ferðina:

Steinasafn Petru 9-17

Salthúsmarkaðurinn 10 -17

Gallerí Snærós 11:00 – 17:00

Frétta og viðburðayfirlit