mobile navigation trigger mobile search trigger
12.07.2024

Brakandi blíða í Fjarðabyggð

Í morgun var hitastigið komið upp í 20 gráður og brakandi sól. Það verður mikið um að vera næstu dagana á Innsævi. Jóga og íhugun með lifandi tónlist undir berum himni og Dundur - Tónleikar - Tónleikar í Tónspil.
Brakandi blíða í Fjarðabyggð
Ljósmynd: Aron Leví Beck
Við minnum einnig á að sýningin Hernám eftir Marc Alexander í Bragganum við Íslenska Stríðsárasafnið - The Icelandic Wartime Museum er opið næstu daga og yfir helgina frá 13:00-17:00. ☀️
Á laugardaginn er úr mörgu að velja en á Reyðarfirði verður opin leirvinnustofa hjá listakonunni Esther Ösp við Sunnugerði 21 og Jóga með lifandi tónlist undir berum himni hjá Stríðsárasafninu. Um kvöldið verður hljómsveitin CHÖGMA ásamt Social Suicide með tónleika í Skrúði á Fáskrúðsfirði. 🎸
Njótum góða veðursins og menningarinnar saman 💛
Fleiri myndir:
Brakandi blíða í Fjarðabyggð
Ljósmynd: Aron Leví Beck

Frétta og viðburðayfirlit