mobile navigation trigger mobile search trigger
12.09.2014

Áhrif SO2 gosmengunar á dýr

Matvælastofnun vill vekja athygli dýraeigenda á að loftmengun frá eldgosinu í Holuhrauni hefur sambærileg áhrif á dýr og fólk. Það er því ástæða til að verja dýrin gegn áhrifum hennar svo sem kostur er.

Brennisteinsdíoxíð veldur m.a. ertingu í öndunarfærum og augum. Áhrifin eru meiri því lengur sem dýrin eru útsett fyrir menguninni. Þegar styrkur brennisteinsdíoxíðs í andrúmslofti er hár þarf að reyna að draga sem best verður á kosið úr álagi á öndunarfæri. Þetta er rétt að hafa í huga við smölun þá daga sem mengunin er mikil, því meðal þess sem þarf að varast eru mikil hlaup og streita.

Engin opinber viðmiðunarmörk eru til fyrir styrk brennisteinsdíoxíðs í umhverfi dýra og rannsóknir eru takmarkaðar. Matvælastofnun mælir með að miðað sé við sömu mörk og gilda fyrir fólk. Heilsuverndarmörk fyrir eina klukkustund eru 350µg/m3 en mörkin fyrir einn sólarhring eru 125µg/m3, skv. reglugerð nr. 251/2002.

Viðbrögð dýraeigenda við eldgosi- frétt MAST 22.08.2014i

Viðbúnaður vegna hættu á eldgosi - frétt MAST 21.08.2014

 

 

 

Frétta og viðburðayfirlit