Undanfarið ár hafa sérfræðingar Veðurstofu Íslands unnið með Almannavarnarnefnd Austurlands að því að uppfæra rýmingarkort vegna ofanflóðahættu fyrir þéttbýlin í Fjarðabyggð og Múlaþing. Um er að ræða rýmingarkort fyrir Neskaupstað, Eskifjörð, Fáskrúðsfjörð, Stöðvarfjörð og Seyðisfjörð sem tóku gildi í síðustu viku.
Ný rýmingarkort kynnt í Fjarðabyggð
Á vegum Almannavarnanefndar Austurlands verður haldinn fundur þriðjudaginn 4. og 5. desember, í Neskaupstað, Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði þar sem þessi nýju rýmingarkort verða kynnt. Íbúar eru eindregið hvattir til að mæta.
Ein mikilvægasta breytingin er sú að nú eru kortin sett fram á stafrænan hátt og verða aðgengileg á kortasjá á heimasíðu sveitarfélaganna sem um ræðir, Fjarðabyggðar og Múlaþings og taka þannig tillit til breytinga innan þéttbýlanna með nýjum götum og húsum. Þá mun þetta einfalda skipulag og vinnu viðbragðsaðila ef til rýminga kemur til að vinna með nýjustu landupplýsingar og önnur stafræn gögn og þannig efla almannavarnarviðbragð.
Nesskóli Neskaupstað miðvikudaginn 4. desember kl: 20:00
Grunnskólanum á Fáskrúðsfirði miðvikudaginn 4. desember kl: 18:00.
Grunnskólanum á Stöðvarfirði miðvikudaginn 4. desember kl: 16:00
Grunnskólinn á Eskifirði fimmtudaginn 5. desember kl: 20:00.