Föstudaginn 20. desember næstkomandi klukkan 17:00 verður haldin minningarstund í Norðfjarðarkirkju í tilefni af því að 50 ár er frá því að snjóflóðin féllu í Neskaupstað 20. desember 1974. Séra Benjamín Hrafn Böðvarsson og séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir leiða stundina. Kór Norðfjarðarkirkju syngur í athöfninni ásamt tónlistarfólki frá Neskaupstað.
02.12.2024
Minningarstund í Norðfjarðarkirkju í tilefni að 50 ár eru liðin frá snjóflóðunum í Neskaupstað 1974.
Klukkan 17:00
Eftir minningarstundina verður haldin ljósastund við minningarreitinn vegna snjóflóðanna klukkan 18:00. Þaðan verður svo farin ljósaganga um snjóflóðavarnagarðanna og endað í Safnahúsinu þar sem boðið verður upp á heitt súkkulaði og kleinur.