Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2025, ásamt þriggjá ára áætlun 2026 - 2028 var samþykkt við síðari umræðu bæjarstjórnar fimmtudaginn 5. desember með öllum greiddum atkvæðum.
Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar samþykkt í bæjarstjórn
Að venju samanstendur tillagan af tölulegri umfjöllun um annars vegar A-hluta bæjarsjóðs og hins vegar A- og B-hluta, ásamt greinargerð. Í A-hluta er aðalsjóður og eignasjóðir, en í B-hluta eru veitustofnanir auk hafnarsjóðs, félagslegra íbúða og sorpstöðvar. Þá er, líkt og síðustu ár, áætlunin sett fram sameinuð í eina fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og svo næstu þriggja ára. Þá er að finna í henni frekari ítarupplýsingar um fjölbreyttan rekstur Fjarðabyggðar.
Áætlunin ber þess merki að fjárhagur Fjarðabyggðar, eins og annara sveitarfélaga, stendur frammi fyrir áskorunum þar sem efnahagslífið einkennist af verðbólgu, háum vöxtum og óvissu um þróun kjarasamninga.
Áætlunin gerir ráð fyrir því að rekstrarniðurstaða í árslok 2025 í A-hluta verði jákvæð um 208 milljónir króna og í samstæðu A og B hluta um 646 milljónir króna.
Á tekjuhlið áætlunarinnar er gert ráð fyrir að staðgreiðslutekjur aukist um 6,7% frá spá um niðurstöðu ársins 2024. Sveitarfélagið hefur í gegnum tíðina ávallt nálgast tekjuspá fjárhagsáætlunar með varfærnum hætti og engin breyting á því nú. Mikil óvissa eru um veiðiheimildir í loðnu og í spánni er tekið tillit til þessarar óvissu en miðað við að veiðar haldist lítt breyttar í öðrum tegundum. Fjarðabyggðahafnir eru annar stærsti hafnarsjóður landsins og stærsta löndunarhöfn landsins í uppsjávarafurðum sem gerir það að verkum að sveiflur í veiðum og verðum slíkra afurða hafa mikil áhrif á fjárhag sveitarfélagsins.
Þá er gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2025 að álagningarhlutfall fasteignaskatts íbúðarhúsnæðis verði lækkað úr 0,424% í 0,4%. Breyting á matsstofni íbúðarhúsnæðis eykur tekjur sveitarfélagsins frá árinu 2024 en samhliða er ráðgert að hækka veittan afslátt til þeirra sem undir þær reglur falla. Það er mikið ánægjuefni að íbúðarverð fari hækkandi og um leið skapast grundvöllur til nýbygginga í sveitarfélaginu sem kemur á móti húsnæðisskorti sem hefur verið mikill í hverfum Fjarðabyggðar.
Gjaldskrárhækkanir haldast innan hóflegra marka, 2,5% á gjaldskrám sem snúa að barnafjölskyldum samanborið við almenna hækkun um 5,6%.
Á kostnaðarhlið áætlunarinnar byggir launaáætlun ársins 2025 á áætlunum stjórnenda á grunni gildandi kjarasamninga. Mikil óvissa er enn varðandi launalið áætlunarinnar þar sem enn er ósamið við stóra hópa starfsmanna sveitarfélagsins. Til að mæta þessari óvissu eru teknir til hliðar fjármunir í miðlægan pott hjá bæjarráði til að mæta mögulegum launabreytingum á árinu 2025. Annar rekstrarkostnaður er einnig áætlaður af stjórnendum á grunni starfsáætlana fyrir árið 2025. Fjármagnsliðir eru áætlaðir á grunni þeirra lánskjara sem Fjarðabyggð er með og eru verðbólguviðmið höfð 3,9% í takt við þjóðhagsspá Hagstofu Íslands.
Áætlaðar fjárfestingar eru alls um 955 milljónir og áætaðar fjárfestingar næstu fjögura ára nema um 3,5 milljörðum. Stærsta fjárfestingarverkefni ársins 2025 verður að halda áfram uppbyggingu á leikskólanum Dalborg á Eskifirði og verkefni tengt gluggum og klæðningu grunnskólans á Reyðarfirði. Þá eru stærstu verkefnin í Hafnarsjóði tengd áframhaldandi vinnu við dýpkun á Eskifjarðarhöfn og frágangi ásamt því að unnið er að undirbúningi næstu skrefa við Mjóeyrarhöfn. Fjarðabyggð gerir ráð fyrir að framlegð af rekstri standi undir fjárfestingum og afborgunum af lánum á áætlanatímabilinu og er því ekki gert ráð fyrir lántökum á tímabilinu.
Helstu áhersluatriði í starfsáætlunum sviða eru m.a. eftirfarandi:
- Fjölmenningarráð tekur til starfa á árinu 2025.
- Áframhaldandi áhersla á aukna samhæfingu starfsemi og úrræða innan fjölskyldusviðs.
- Áhersla er á rýni reksturs leik- grunn og tónskóla Fjarðabyggðar með það fyrir augum að auka rekstrarlega samlegð og efla faglegt starf.
- Unnið að framtíðarstefnu í íþróttamálum í Fjarðabyggð og rýni á viðhaldsþörf mannvirkja og forgangsröðun því tengt.
- Tilraunaverkefnið „Gott að eldast“ fer af stað í samstarfi við HSA og ráðuneyti.
- Menningarstefna endurskoðuð og horft til frekari eflingar og samþættingar menningar-, lista- og safnastarfs.
- Fylgt verður eftir þeim verkefnum og úrbótum sem í gangi eru á vettvangi almannavarna og öryggismála í sveitarfélaginu í kjölfar náttúruhamfaranna síðasta vetur.
- Unnið verði að deiliskipulögum m.a. vegna miðbæjarsvæða á Eskifirði og Balanum á Stöðvarfirði auk forgangsröðun á frekari deiliskipulagsgerð.
- Innleiðing lausna og útfærsla kerfis í kjölfar nýrra laga um móttöku úrgangs.
- Áframhaldandi áhersla á uppbyggingu húsnæðis í Fjarðabyggð með framboði á lóðum auk þátttöku í verkefnum eins og t.d. í gegnum Brák á grunni húsnæðisstefnu sveitarfélagsins.
- Áhersla á auknar greiningar og upplýsingagjöf stoðsviða sem nýtast við ákvarðanatöku, eftirfylgni og stefnumótun.
- Unnið að auknu samstarfi atvinnulífs á svæðinu m.a. í tengslum við þróun græns orkugarðs.
Upptöku af fundi bæjarstjórnar má finn með því að smella hér
Hér má nálgast kynningu bæjarstjóra á fjárhagsáætluninni: Fjárhagsáætlun Fjarðabyggð 2025-2028
Hér má nálgast fjárhagsáætlunina í heild sinni: Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2025 - 2028 - samþykkt í bæjarsjórn