Á síðustu mánuðum hafa orðið nokkrar breytingar á starfsliði bæjarskrifstofu. Marinó Stefánsson og Ívar Örn Þórðarson eru nýir starfsmenn á framkvæmdasviði og Sigríður Vigdís Þórðardóttir er nýr starfsmaður á fjármálasviði. Þá hefur Ásta Kristín Sigurjónsdóttir verið ráðin til eins árs, sem verkefnastjóri í atvinnumálum.
16.07.2014
Breytingar á starfsliði bæjarskrifstofu
Á síðustu mánuðum hafa orðið nokkrar breytingar á starfsliði bæjarskrifstofu.
Marinó Stefánsson og Ívar Örn Þórðarson eru nýir starfsmenn á framkvæmdasviði og Sigríður Vigdís Þórðardóttir er nýr starfsmaður á fjármálasviði. Um er að ræða stöður sem ekki var ráðið í um leið og fyrirrennarar viðkomandi, létu af störfum fyrr á árinu. Þá lét Kristinn Ívarsson, starfsmaður framkvæmdasviðs, af störfum nýlega sökum aldurs, en Kristinn hefur starfað hjá bænum í fjölda ára.
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin til eins árs, sem verkefnastjóri í atvinnumálum.
Ásta Kristín mun hefja störf 1. ágúst nk.