mobile navigation trigger mobile search trigger
12.01.2024

Leikskólakennari við Leikskólann Lyngholt

Lyngholt er 80 nemenda skóli sem skiptist á 6 deildar. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Lyngholt vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

Helstu verkefni:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra/skólastjórnendur
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntun og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Leikskólakennari

Um er að ræða 100 % stöður, sem við hvetjum öll kyn til að sækja um. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið sörf sem fyrst eða þann 1. mars/apríl 2024.

Umsóknarfrestur er til og með 15 febrúar 2024.

Greitt er 50.000 kr. álag fyrir að matast með börnunum og unnið er eftir kjörum um styttingu vinnuvikunnar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Nánari upplýsingar gefur:

Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri á lisalotta@skolar.fjardabyggd.is, s. 474-1250
Gerður Ósk Oddsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, á gerdur@skolar.fjardabyggd.is, s. 471-1280

Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit