Umhverfisstofnun hefur sett upp tímabundna upplýsingasíðu vegna SO2 gosmengunar í lofti. Þar má m.a. finna ráðleggingar um rétt viðbrögð og senda fyrirspurn til stofnunarinnar. Gildi upp að 600 viðunandi gagnvart líklegum áhrifum á helsufar.
Ráðlögð viðbrögð við SO2 gosmengun
Umhverfisstofnun hefur sett upp tímabundna upplýsingasíðu vegna SO2 gosmengunar í lofti (brennisteinstvíildi, brennisteinsdíoxíð). Þar má m.a. finna ráðleggingar um rétt viðbrögð og senda fyrirspurn til stofnunarinnar.
Farið er á síðuna með því að smella á borða efst á forsíðu ust.is. Fólk er hvatt til að senda inn fyrirspurnir og einnig að koma upplýsingum um gosmengun á framfæri við Umhverfisstofnun og ljósmyndum. Þá hefur FB-síða stofnunarinnar jafnframt verið virkjuð sem upplýsingaveita til almennings. Leitast verður við að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er.
Sóttvarnarlæknir, Umhverfisstofnun og almannavarnardeild ríkislöglustjóra
September 2014
Byggt á upplýsingum frá U.S. Department of the Interior, U.S. Geological Survey, Menlo Park, California, USA ( http://hvo.wr.usgs.gov)
Ekki eru ein viðmiðunarmörk varðandi SO2 gosmengun, heldur nokkur mismunandi. Áhrif loftmengunar á heilsu fólks er háð tveimur þáttum sem verða ekki aðskildir. Það eru annars vegar styrkur mengunar og hins vegar það tímabil sem mengunin stendur yfir. Margfeldi þessara tveggja þátta er kallað útsetning (e. exposure).
Þannig getur verið að mengunartoppur sem hefur mjög háan styrk en stendur stutt yfir hafi óveruleg áhrif á heilsu fólks en að toppur sem hefur mun lægri styrk en varir lengi hafi meiri áhrif á heilsu.
Þetta endurspeglast í hinum mismunandi mörkum. Þannig eru mengunarmörk SO2 fyrir klukkutímann 350 μg/m3 og fyrir sólarhringinn 125 μg/m3.
Heilsuverndarmörk eru miðuð við alla hópa sem viðkvæmir eru fyrir mengun, þar með talið börn og því eru þau strangari en vinnuverndarmörk sem aðeins eru miðuð við vinnandi fólk og aðeins í 8 tíma á dag hluta vikunnar.
Mæligildi laugardagsins 6. september á Reyðarfirði í samanburði við viðmiðunarmörk:
Sólarhringsmeðaltal var 152μg/m3.
Heilsuverndarmörk fyrir sólarhring eru 125μg/m3.
Leyfilegt er að fara yfir þau mörk þrisvar á ári.
Hæsta klukkutímameðaltal var 580 μg/m3.
Heilsuverndarmörk fyrir klukkutíma eru 350μg/m3.
Leyfilegt er að fara 24 sinnum yfir þau á ári.
Hæsta 10 mínútna meðaltal á Reyðarfirði mældist 659μg/m3.
Engin mörk eru um 10 mín. meðaltal.
Vinnuverndarmörk fyrir 8 tíma vinnudag eru 1300 μg/m3.
Hámarksgildi fyrir hverjar 15 mínútur er 2600μg/m3.
Vinna er ekki heimil ef gildi fer yfir 2600μg/m3.
Há klukkutímagildi í menguðum iðnaðarborgum geta hlaupið á þúsundum μg/m3.
Tilkynningu Umhverifsstofnunar og Sóttvarnarlæknis 7. september 2014)
Tilkynning Embættis landlæknis vegna SO2 á Austurlandi