Einmuna gott veðurfar og 70 ára afmælisár sundlaugarinnar á Norðfirði spilaði stórt hlutverk í að árið 2013 var sett aðsóknarmet í sundlaugina í Neskaupstað.
20.01.2014
Aðsóknarmet í sundlaugina á Norðfirði
Einmuna gott veðurfar og 70 ára afmælisár sundlaugarinnar á Norðfirði spilaði stórt hlutverk í að árið 2013 var sett aðsóknarmet í sundlaugina í Neskaupstað. Árið 2013 komu í sundlaugina 44.544 gestir og er það örlítið meiri aðsókn en 2010 þegar rétt ríflega 44.000 gestir sóttu laugina heim.