Boðið verður upp á sérstaka sýnatöku (PCR-próf) í Tónlistarmiðstöðinni (kirkjunni) á Eskifirði í dag milli kl. 11:00 – 13:00. Í ljósi fjölda smita á Eskifirði sem komið hafa upp síðustu daga eru íbúar eru hvattir til að nýta sér þetta og mæta í sýnatöku óháð því hvort þeir hafi verið útsettir fyrir smiti.
09.12.2021
Sýnataka vegna COVID-19 á Eskifirði í dag 11:00 - 13:00
Auk þess er sýnataka á Reyðarfirði og á Egilsstöðum í dag á hefbundnum tíma (bæði PCR og hraðpróf)
Reyðarfjörður - heilsugæslan við bílskúr kl. 9-10:30
Egilsstaðir - Blómabær kl. 12-13:30
Nánari upplýsingar um þetta má finna á fésbókarsíðu HSA með því að smella hér.