Uppskeruhátíð Leiknis var haldin nýlega. Knattspyrnudeildin veitti að venju margar viðurkenningar. 25 börn í sjötta, sjöunda og áttunda flokki fengu viðurkenningar fyrir þátttöku.
24.11.2014
Uppskeruhátíð Leiknis Fáskrúðsfirði
Eftirtaldir fengu viðurkenningu í sínum flokki:
5. flokkur kvenna - Heiðbrá Björgvinsdóttir og Malen Valsdóttir
4. flokkur kvenna - Elísbet Eir Hjálmarsdóttir
4. flokkur karla - Kifah Moussa Mourad
3. flokkur kvenna - Brynja Rún Steinþórsdóttir
3. flokkur karla - Garðar Logi Ólafsson
2. flokkur karla - Unnar Ari Hansson
Kristófer Páll Viðarsson var valinn efnilegasti leikmaður Leiknis þriðja árið í röð og varðveitir Valþórsbikarinn því áfram.
Björgvin Stefán Pétursson var útnefndur knattspyrnumaður ársins 2014 og fékk því Kaupfélagsbikarinn til varðveislu næta árið. Björgvin Stefán var einnig valinn íþróttamaður Leiknis árið 2014.