Fræðslu- og frístundanefnd hefur lokið við úthlutun á íþróttastyrkjum til íþróttafélaga í Fjarðabyggð fyrir árið 2014.
úthlutunin fór fram samkvæmt nýjum reglum sem samþykktar voru á síðasta ári og byggja á fimm meginstoðum eða styrkjum til meginfélaganna fimm í Fjarðabyggð, ferðastyrkjum, samvinnustyrkjum, afreksstyrkjum og styrkjum til sérverkefna s.s. stofnunar nýrra deilda eða nýrrar starfsemi innan félaganna.