mobile navigation trigger mobile search trigger
01.11.2024

Bragðlaukaþjálfun á Eyrarvöllum

Í september hóf leikskólinn á Eyravöllum þátttöku í rannsóknarverkefni Berglindar Lilju Guðlaugsdóttur og hennar teymis í bragðlaukaþjálfun sem nefnast Litlu laukar. Litlu laukar er bragðlaukaþjálfun hjá börnum sem felst í markvissri þjálfun í að smakka og upplifa mat með öllum skynfærum sínum.

Bragðlaukaþjálfun á Eyrarvöllum
Nemendur leikskólans á Eyravöllum í bragðlaukaþjálfun

Þannig finna þau mismunandi brögð af mismunandi mat með mismunandi áferð. Mikil ánægja og áhugasemi hefur verið bæði meðal starfsfólks og barna og hefur opnað fyrir okkur nýja sýn á verkefnavinnu með mat.

Matvendni hjá börnum, sérstaklega þeim sem glíma við taugaþroskaraskanir á borð við ADHD og raskanir á einhverfurófi, er nýtt og vaxandi rannsóknarefni sem krefst þverfaglegrar nálgunar. Bragðlaukaþjálfun er unnin upp úr hugðarefni Önnu Sigríðar Ólafsdóttur prófessors í næringarfræði og teymis hennar. Aðaláhersla okkar í þessu verkefni er á fæðuval, matvendni og líðan, bæði hjá börnum og foreldrum. Meginþungi rannsóknarinnar liggur í fjölbreytileika í fæðuvali, og þá sér í lagi að auka neyslu ávaxta- og grænmetis sem eru þær fæðutegundir sem helst skortir í mataræði barna almennt. Bragðlaukaþjálfun í þeirri mynd sem við fáumst við hana er nýjung á Íslandi. 
 
Rannsóknir okkar benda til þess að draga megi úr matvendni með bragðlaukaþjálfun. Þjálfunin felur í sér endurtekna kynningu á matvælum á tiltölulega skömmum tíma en mesta ákorunin er oft að fá börn til að smakka bragðmiklar fæðutegundir. Við höfum leikinn og gleðina að leiðarljósi og samvinnu barna og foreldra. Matvendni getur falið í sér að barn velur umfram annað mat sem er bragðdaufur eða sætur, en litur, áferð og annað skynáreiti getur líka ýtt undir einhæft fæðuval. Það krefst þolinmæði að venja börn á nýjar fæðutegundir og mikilvægt er að virkja fjölskylduna og nærumhverfið til að draga úr matvendni og stuðla að heilsusamlegu fæðuvali.

Frekari upplýsingar um rannsóknina má finna hér: Bragðlaukaþjálfun

Frétta og viðburðayfirlit