Mánudaginn 28. október verður haldinn kynningafundur á uppbyggingu ljósleiðarkerfis í Fjarðabyggð í Salthúsmarkaðnum á Stöðvarfirði klukkan 16:15.
24.10.2024
Kynningarfundur á uppbyggingu á ljósleiðarakerfi í Fjarðabyggð
Dagskrá fundarins:
- Opnun fundar.
- Ávarp formanns bæjarráðs.
- Ávarp forstjóra Mílu.
- Ávarp verkefnastjóra Sterks Stöðvarfjarðar
- Kynning á verkefninu.
- Undirritun Fjarðabyggðar og Mílu.
Frekari upplýsingar um verkefnið má finna hér. https://fjb.is/Ljosleidari