mobile navigation trigger mobile search trigger
14.11.2024

Nýr forstöðumaður menningarstofu ráðinn

Þórhildur Tinna Sigurðardóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar. Staða forstöðumanns var auglýst laus til umsóknar þann 7. október síðastliðinn og lauk umsóknarfresti þann 25. október. Alls bárust sex umsóknir um stöðuna. Niðurstaða ráðningarferilsins var að bjóða Þórhildi Tinnu starfið.

Nýr forstöðumaður menningarstofu ráðinn
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir

Þórhildur Tinna kom til starfa sem verkefnastjóri menningarstofu í september á þessu ári. Þórhildur er með masterspróf í menningar- og liststjórnun og BA gráðu í listfræði.  Hún hefur víðtæka reynslu af verkefna- og viðburðastjórnun ýmissa viðburða, bæði stórra sem smárra hér á landi sem erlendis. Hún hefur jafnframt borið ábyrgð á sýningastjórnun og verið framkvæmdastjóri listahátíða.

Þórhildur tekur til starfa sem forstöðumaður 1. desember 2024.

Við óskum Þórhildi Tinnu til hamingju með nýja starfið.

Frétta og viðburðayfirlit