mobile navigation trigger mobile search trigger
05.02.2025

Rauð viðvörun vegna veðurs og hættustigi Almannavarna lýst yfir

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, Austurlandi, Vestmannaeyjum, Suðurlandi og Suðurnesjum lýsir yfir hættustigi Almannavarna vegna veðurs sem spáð er næsta sólarhringinn. Hættustig Almannavarna gildir frá og með 15:00 í dag á landinu öllu en rauð viðvörun tekur gildi kl. 18 á Austurlandi og gildir til kl. 4 í nótt. Síðan verður aftur rauð viðvörun frá kl. 8 til kl.18 á morgun fimmtudaginn 6. febrúar.

Rauð viðvörun vegna veðurs og hættustigi Almannavarna lýst yfir

Veðrið gengur yfir landið á mismunandi tíma með mismiklum áhrifum og er fólk hvatt til að fylgjast með á vef Veðurstofunnar http://www.vedur.is. Auk þess er hægt að fylgjast með færð á vegum á  vef Vegagerðarinnar http://www.umferdin.is.

Veðrinu sem er spáð getur valdið miklum samfélagslegum áhrifum og getur valdið tjóni. Einnig getur það haft mikil áhrif á þjónustu, innviði og samgöngur á landi og lofti. Í ljósi þessarar stöðu hefur verið tekin ákvörðun um að aflýsa öllu skólahaldi jafnt í leik-,  grunn- og tónlistarskólum Fjarðabyggðar fimmtudaginn 6. febrúar og fólk er hvatt til að halda sig heima eigi það þess nokkurn kost. Þá er afar mikilvægt að fólk komi lausamunum sem geta fokið í skjól. Að auki falla niður allar almenningssamgöngur, bókasöfn og íþróttamiðstöðvar verða einnig lokuð. Móttökustöðvar Fjarðabyggðar opna ekki í dag, miðvikudag og verða einnig lokaðar á morgun. 

Bátaeigendur eru beðnir um að ganga  í skugga um að bátar þeirra séu kyrfilega bundnir og gengið frá öðrum lausamunum hvort sem það er í uppsátri eða höfnum.

Frétta og viðburðayfirlit