mobile navigation trigger mobile search trigger
30.12.2024

Samstarf á milli skíðasvæðanna í Oddsskarði og Stafdal

Sveitarfélögin Fjarðabyggð og Múlaþing hafa gert með sér samkomulag um sameiginlega gjaldskrá fyrir skíðasvæðin í Oddsskarði og Stafdal. Samkomulagið gerir skíðaiðkendum kleift að nýta bæði svæðin án þess að þurfa greiða aukalega fyrir það. Samstarfið er er mikilvægur áfangi í skíðamálefnum Austurlands og styrkir bæði þjónustu og aðgengi að þessum einstöku útivistarsvæðum. 

Samstarf á milli skíðasvæðanna í Oddsskarði og Stafdal

Af því tilefni bjóða sveitarfélögin upp á 20% afslátt af vetrarkortum til og með 15. janúar 2025. Afslátturinn gildir fyrir einstaklinga og fjölskyldur og veitir fullan aðgang að báðum svæðunum allt tímabilið. 

Samstarið á milli svæða er stórt skref í átt að því að gera Austurland að leiðandi áfangastað fyrir skíðaiðkun og vetrarferðamennsku.  Íbúar og gestir Austurlands eru hvattir til að nýta sér þetta einstaka tilboð og tryggja sér vetrarkort á afsláttarverði.

Nánari upplýsingar um verð og afslátt má finna á síðu Fjarðabyggðar, þar sem hægt er að kaupa miðana. 

Frétta og viðburðayfirlit