Upptakturinn á Austurlandi er tónsmiðja fyrir ungmenni í Studio Silo á Stöðvarfirði sem fer fram dagana 8 – 9 febrúar 2025.
Skráning til 21 janúar með hugmynd af lagi eða tónverki. Tónsmiðjan er gjaldfrjáls.
Öll ungmenni í 5 – 10 bekk og sem eruy búsett á Austurlandi geta tekið þátt, eina sem þarf að gera er að senda hugmynd að lagi/tónverki á
menningarstofa@fjardabyggd.is fyrir 21 janúar. Skila má tónsmíð inn sem MP3/Wav/Myndbandi
eða lagatextum á word skjali eða mynd af handskrifuðum tillögum. Með þátttöku eiga ungmennin kost á því að vera valin til þess að taka þátt í Upptaktinum í Reykjavík sem mun fara fram 11. apríl. Þátttakendur eiga því möguleika á því að vinna sér ferð og gistingu til Reykjavíkur ásamt forráðamanni.
Í þetta sinn munu Jón Hilmar & Salóme Katrín leiða Upptaktinn á Austurlandi í Studíó Silo 8 - 9 febrúar, þar sem unnið verður markvisst úr hugmyndum með öðru tónlistarfólki frá fagvettvangi á Íslandi sem staðfest verður síðar.