Alzheimersamtökin, heilabilun og samskipti - fræðsla á Reyðarfirði

Eitt af meginmarkmiðum Alzheimersamtakanna er auka þekkingu og skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra glíma við. Þau halda því reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið um starf samtakanna, heilabilun og samskipti.
Nú er förinni heitið austur á firði þar sem þau halda nokkur fræðsluerindi og þar af eitt sem er öllum opið á Reyðarfirði.
•
Þri. 29. apríl kl. 17:00 – í sal Krabbameinsfélags Austfjarða, Sjávargötu 1, Reyðarfirði
Hverjir
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna halda erindi. Helga Sól Birgisdóttir, forstöðumaður heimaþjónustu Fjarðarbyggðar og Helga Elísabet Guðlaugsdóttir, teymisstjóri heimaendurhæfingarteymis HSA jafnframt með stutta kynningu. Fyrir hverja
Fyrirlesturinn er opin öllum áhugasömum en þeir sem mæta öðlast dýpri skilning á heilabilun og fá hagnýt verkfæri til að auðvelda samskipti, bregðast við aðstæðum og hugmyndir fyrir ánægjulegar samverustundir með einstaklingum með heilabilun.
Aðgangur ókeypis.