mobile navigation trigger mobile search trigger
27.02.2025

Velheppnuð opnun á Píeta skjóli á Reyðarfirði

Píeta samtökin og Fjarðarbyggð buðu til viðburðar í morgun á Reyðarfirði, tilefnið var opnun á meðferðarúrræði og undirritun samstarfssamnings Píeta samtakanna og Fjarðabyggðar. Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar og Ellen Calmon, framkvæmastýra samtakanna undirrituðu samninginn.  Íbúar Fjarðabyggðar, fagfólk og áhugafólk um geðheilbrigði mættu á svæðið. Gestir kynntu sér meðferð og úrræði Píeta samtakanna, hittu fagfólk og framkvæmdastýru samtakanna.

Velheppnuð opnun á Píeta skjóli á Reyðarfirði
Jóna Árný, bæjarstjóri Fjarðabyggðar og Ellen Calmon, framkvæmdastýra Píeta samtakanna undirrita samstarfssamning.

Einnig gafst þeim tækifæri til að skoða húsnæði og viðtalsaðstöðu Píeta samtakanna á Reyðarfirði sem er staðsett í húsnæði fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar við Búðareyri 2. Þetta var notaleg stund þar sem gott var að ræða málin og þétta raðirnar. Það þarf samfélag til að taka utan um þá sem á þurfa að halda og það var dásmlegt að hitta fyrir grósku og hlýju meðal austurlendinga.

Austurland hefur lengi kallað eftir þjónustu Píeta samtakanna. Það er því sönn ánægja fyrir samtökin að opna nú loks Píeta skjól að Búðareyri 2 á Reyðarfirði. Píeta samtökin eru nú þegar með skjól í Reykjavík, á Ísafirði, á Akureyri og á Húsavík. Einnig þjónustar hjálparsími Píeta, 552 2218 allt landið, allan sólahringinn, allt árið um kring.

Fyrstu viðtölin fara fram nú strax í dag, fimmtudaginn 27. febrúar, í húsnæði fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar að Búðareyri 2 á Reyðarfirði. Við minnum á að bókanir í viðtöl fara fram í síma 552 2218 á milli kl. 9 og 16 alla virka daga. Píeta síminn er líka opinn allan sólahringinn, alla daga fyrir þá sem þurfa á hjálp að halda. Meðferðaraðili frá Píeta mun veita viðtöl á Búðaraeyri einu sinni í mánuði til að byrja með. Þá er einnig boðið upp á fjarviðtöl.

Píeta veitir meðferð fyrir þá sem eru í sjálfsvígshættu eða sjálfsskaða og stuðning við aðstandendur þeirra og aðstandendur sem hafa misst. Þjónustan er fyrir 18 ára og eldri og er gjaldfrjáls.

Meðferðaraðilar Píeta eru allir með viðurkennt starfsleyfi frá landlækni eru þar á meðal sálfræðingar, félagsráðgjafar, iðjuþjálfi og læknir.

Það er svo sannarlega alltaf von og það er hjálp að fá.

Ljósmyndir: Gunnar Gunnarsson, Austurfrétt.

Frétta og viðburðayfirlit