Opið kall til listafólks á Austurlandi fyrir BRAS, menningarhátíð barna og ungmenna! Óskað er eftir samstarfi við listafólk á Austurlandi til að bjóða uppá listar- og menningarviðburði, eða vinnustofur fyrir börn og ungmenni á áttundu BRAS hátíðinni sem fer fram í haust.
27.03.2025
Opið kall til listafólks á Austurlandi!

Þema og nafn hátíðarinnar í ár ÞRÆÐIR sem hefur ýmsa skírskotun. Þræðir tengja okkur öll saman, hvort sem við erum hluti af fjölskyldu, samfélagi eða íbúar á sömu plánetu. Þræðir eru meginuppistaða margra hluta sem við notum og getur „ofnotkun“ þeirra haft áhrif á lífsgæði og hringrás efna í náttúrunni. Á hátíðinni ætlum við að leggja áherslu á hvaða hlutverki við gegnum í heildarmyndinni, hvernig okkar þráður hefur áhrif á fólkið og umhverfið í kringum okkur.
Mikilvægt er að listafólkið hafi reynslu af því að vinna með og fyrir börn.
Farið verður eftir neðangreindum atriðum:
- Umsækjendur senda inn vel formaða hugmynd að verkefni, þar sem tilgreina skal:
- aldur þátttakenda
- staðsetningu/staðsetningar
- fjölda barna/ungmenna í hverju verkefni
- lengd verkefnis
- tíma innan ársins
- hvað annað er máli skiptir.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Austurbrú hér að neðan:
https://austurbru.is/leitad-ad-listafolki/