mobile navigation trigger mobile search trigger
19.03.2025

Skólahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Þriðjudaginn 18. mars var haldin skólahátíð þar sem nemendur 7. bekkjar Grunnskólans á Eskifirði æfðu sig í upplestri fyrir foreldra og kennara í sal skólans. Nemendur stóðu sig  með eindæmum vel og mega þeir vera stoltir af frammistöðu sinni. Það hefur verið einstaklega gaman að fylgjast með miklum framförum nemenda í framsögn og framkomu og óhætt er að segja að margir sætir sigrar hafi unnist  með þátttökunni því hugrekki og öryggi nemenda við að koma fram hefur einnig aukist til muna. 

Skólahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Þó svo að aðeins tveir hafi verið valdir til áframhaldandi þátttöku má segja að sigurvegararnir hafi verið mun fleiri.Til hamingju nemendur í 7. bekk með glæsilega frammistöðu.

Við óskum Óttari, Nönnu Silviu, Aroni Helga og Polu innilega til hamingju og óskum þeim jafnframt góðs gengis í aðalkeppninni. 

Fleiri myndir:
Skólahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Frétta og viðburðayfirlit