mobile navigation trigger mobile search trigger
11.01.2024

Verkefnastjóri Menningarstofu

Fjarðabyggð auglýsir starf verkefnastjóra Menningarstofu Fjarðabyggðar laust til umsóknar.

Vilt þú taka þátt í starfi öflugs og samheldins hóps starfsmanna Fjarðabyggðar? Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á menningu og listum sem á að hafa yfirsýn og drifkraft til að tengja saman allt það ólíka sem fer fram í fjölkjarna sveitarfélagi. Mikilvægt er að einstaklingur hafi menntun og þekkingu á sviðum tónlistar sem nýtist menningar- og tónlistarlífi í samræmi við áherslur menningarsamnings. Starfið gegnir veigamiklu hlutverki í menningarmálum. Rík áhersla er lögð á teymisvinnu og þverfaglega vinnu.

Menningarstofa hefur það hlutverk að efla menningu, listir og skapandi starf í Fjarðabyggð. Hún þjónar sem tengiliður milli stjórnkerfis, fagumhverfis og grasrótarstarfsemi í listum og menningu þvert á svið og stofnanir. Menningarstofa annast framkvæmd menningarsamnings um tónlistaruppbyggingu á Austurlandi.

Verkefnastjóri annast verkefni og verkefnastjórn á vegum stofnunarinnar.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með verkefnum í menningarstefnu og samningi um tónlistaruppbyggingu.
  • Viðburða- og verkefnastjórnun í menningu og listum.
  • Tæknileg aðstoð og ráðgjöf vegna tónleikahalds.
  • Þróunarstarf, fræðsla og þekkingaruppbygging í menningu og á sviðum tónlistar.
  • Fagleg ráðgjöf á sviðum menningar og lista.
  • Stuðlar að framþróun á sviðum menningar og lista.
  • Eftirlit með listaverkaeign Fjarðabyggðar og nýtingu.
  • Fagleg vinna og uppsetning verka í sýningarrýmum.
  • Vinnur að innleiðingu menningar og lista í frístundastarfi og skólastofnunum.
  • Vinnur að öflun styrkja og styrktaraðila vegna viðburða.
  • Vinnur að kynningu starfsemi og upplýsingamiðlun um viðburði.
  • Vinnur skýrslur, greinargerðir og fréttaefni um menningu og listir.

Hæfniskröfur:

  • Menntun á sviðum menningar, lista og eða kennslu er áskilin.
  • Þekking og reynsla af menningarstarfi og listum er æskileg.
  • Reynsla af stýringu verkefna eða viðburðastjórnun er áskilin.
  • Reynsla af upplýsinga- og kynningarmálum æskileg.
  • Góð tungumálakunnátta, íslenska og enska ásamt færni og hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli.
  • Góð tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

Starfslýsing verkefnastjóra menningarstofu 2024

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Öll kyn eru hvött til að sækja um stöðuna.

Umsóknarfrestur er til og með 28. janúar 2024 og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Allar frekari upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Jóhannsson forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar, í síma 894 4321 eða á netfanginujohann.johannsson@fjardabyggd.is

Frétta og viðburðayfirlit