Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri, verður með auglýsta viðtalstíma í öllum bæjarkjörnum Fjarðabyggðar næstu daga, sem hér segir:
27.05.2016
Viðtalstímar bæjarstjóra
Mjóifjörður 26. maí - kl. 12:00-14:00 - Sólbrekku
Fáskrúðsfjörður 30. maí - kl. 16:00-18:00 - Þjónustugátt bókasafnsins
Reyðarfjörður 31. maí - kl. 16:00-18:00 - Bæjarskrifstofu
Stöðvarfjörður 1. júní - kl. 16:00-18:00 - Þjónustugátt bókasafnsins
Neskaupstaður 2. júní - kl. 16:00-18:00 - Þjónustugátt bókasafnsins
Eskifjörður 3. júní - kl. 16:00-18:00 - Þjónustugátt bókasafnsins
Þeim, sem geta ekki nýtt sér þessa tíma, er bent á að ávallt er hægt að bóka viðtalstíma við bæjarstjóra eftir samkomulagi á bæjarskrifstofu
Fjarðabyggðar alla virka daga kl. 08:15-16:00 í síma 470 9000.
Eins má hafa beint samband við bæjarstjóra með tölvupósti á vef sveitarfélagsins, fjardabyggd.is.