Reyðfirðingurinn Ásmundur Hálfdán Ásmundsson stóð uppi sem sigurvegari á Evrópumeistaramótinu í keltneskum fangbrögðum sem fram fór í Brezt Frakklandi í síðustu viku. Ásmundur Hálfdán varð Evrópumeistari í „Backhold“og hafnaði í þriðja sæti í „Gouren“ í +100 kílóa flokki.
28.04.2016
Ásmundur Hálfdán Evrópumeistari í keltneskum fangbrögðum
Tveir fulltrúar frá UÍA tóku þátt í mótinu, en auk Ásmundar átti Hjörtur Elí Steindórsson sæti í landsliði Íslands í glímu.
Ásmundur fór lengri leiðina að sigrinum, tapaði einni glímu og keppti við sigurvegara hins riðilsins í undanúrslitum.
Úrslitaglíman sjálf var ekki auðveld, en Ásmundur vann hana engu að síður þrjú núll. Þessi sigur Ásmundar er síðasta rósin í hnappagat hans þennan veturinn, en honum hefur gengið afar vel í glímunni í vetur og er meðal annars handhafi Grettisbeltisins eftirsótta.