Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á íbúð við Búðarmel 7, Reyðarfirði. Um er að ræða 4ra herbergja, 95,2 m² íbúð í raðhúsi. Markmið Brákar íbúðafélags hses. er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.
20.09.2024
Brák íbúðafélag auglýsir íbúð lausa til leigu á Reyðarfirði
Um útleigu íbúðarinnar gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.
Umsókn um leigu
Fylla skal út umsóknareyðublað: (umsóknareyðublað hér) og senda á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.
Umsóknarfrestur er til og með 25. September 2024
Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðinni þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.