mobile navigation trigger mobile search trigger
04.12.2024

Brák íbúðafélag auglýsir íbúðir lausa til leigu á Fáskrúðsfirði

Brák íbúðafélag hses. auglýsir eftir umsóknum um leigu á fimm íbúðum við Gilsholt 6-14 á  Fáskrúðsfirði.  Um er að ræða fimm íbúða raðhús, með þremur 4ra herbergja íbúðum um 89 m² og tveimur 4ra herbergja íbúðum um 108 m².

Markmið Brákar íbúðafélags hses. er að bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni fjölskyldna og einstaklinga.

Um útleigu íbúðarinnar gilda lög um almennar íbúðir nr. 52/2016, í lögunum/reglugerð eru tilgreind tekju- og eignamörk ásamt viðmiði um greiðslubyrði leigu.

Umsókn um leigu

Fylla skal út umsóknareyðublað: (umsóknareyðublað hér) og senda á netfangið: brakibudafelag@brakibudafelag.is ásamt afriti af síðasta skattframtali og afriti af þremur síðustu launaseðlum umsækjenda.

Umsóknarfrestur er til og með 8. desember 2024

Brák íbúðafélag hses. úthlutar íbúðinni þegar farið hefur verið yfir allar umsóknir.

Frétta og viðburðayfirlit