Íþróttavika Evrópu 202 er að hefjast – vertu með! Evrópubúar sameinast í vikunni undir slagorðinu #BeActive
Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin dagana 23. – 30. september 2024 í yfir 30 Evrópulöndum með það að markmiði að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings
Fjarðabyggð hvetur öll íþróttafélög í Fjarðabyggð, samtök og einstaklinga til að taka virkan þátt í íþróttavikunni með því að skipuleggja opnar æfingar og opin hús, viðburði eða aðrar uppákomur sem tengja má með beinum og óbeinum hætti við líkamlega og andlega hreyfingu og heilsu.
Opnar æfingar og tímar í boði hjá félögum
Mánudagurinn, 23. september
Kl. 16:30: Þrek tími - Eyrin Reyðarfirði
Kl. 16:30: Karfa 3.-5. bekkur - Íþróttahúsinu Reyðarfirði
Kl. 17:50: Karfa 6.-8. bekkur - Íþróttahúsinu Reyðarfirði
Þriðjudagurinn, 24. september
Kl. 15:10 – 15:55: Körfubolti á Breiðdal Hrafnkell Freysgoði fyrir 2.-4. bekk
Kl. 15:00 – 16:00: Sundæfing fyrir 2014 og eldri með Sunddeild Austra, Eskifirði
Kl. 16:00: Fyrirlesarinn er Thomas Danielsen, íþróttasálafræðingur meistaraflokks karla hjá KA og viðfangsefni hans er High Performance Strategies. Thomas er með meistaragráðu í íþróttasálfræði frá SDU í Danmörku. Hann hefur starfað í yfir 10 ár með dönskum félögum og leikmönnum í efstu deildum í fótbolta, handbolta, blaki og golfi. Þessa dagana starfar hann fyrir KA en er einnig að vinna með dönskum golförum sem spila á Evróputúrnum. Hann mun fjalla um aðferðir sem hann beitir í hugrænni þjálfun sem hjálpa leikmönnum að ná topp árangri. Í Fjarðabyggðarhöllinni, Reyðarfirði.
Kl. 16:00 – 16:30: Körfubolti á Breiðdal með Hrafnkell Freysgoði fyrir 4 ára til 1. bekks
Kl. 16:30 – 17:15: Sundæfing fyrir 2017-2018 með Sunddeild Austra, Eskifirði
Kl. 17:00: Sjósund með Sigurgeiri Siglingarklúbbur Eskifjarðar
Kl. 17:00: Opið hús í Crossfit, Neskaupstað
Kl. 17:00: Glíma í íþróttahúsið á Reyðarfirði fyrir 5. bekk og eldri
Kl. 17:30: Opin Þrek tími í Eyrinni, Reyðarfirði (fellur niður)
Kl. 19:00: Vatnsleikfimi á Fáskrúðsfirði með Fjólu
Miðvikudagurinn, 25. september
Kl. 15:00: Körfubolti á Breiðdal með Hrafnkell Freysgoði fyrir 5.-10. bekk
Kl. 16:30: Þrek tími - Eyrin Reyðarfirði
Kl. 16:30: Karfa 3.-5. bekkur - Íþróttahúsinu Reyðarfirði
Kl. 16:00: Fimleikadeild Leiknis á Fáskrúðsfirði fyrir 1. & 2. bekk
Kl. 17:00: Fimleikadeild Leiknis á Fáskrúðsfirði fyrir 2019-2020 árgerða
Kl. 17:45: Fimleikadeild Leiknis á Fáskrúðsfirði fyrir 3. & .4 bekk
Kl. 17:45: Spinning & Stöðvaþjálfun í Glaðheimum Fáskrúðsfirði
Kl. 17:50: Karfa í Íþróttahúsi Rey - 6.-8. bekkur
Kl. 18:30: Fimleikadeild Leiknis Fásk - 5. bekkur & eldri
Fimmtudagurinn, 26. September
Kl. 15:00: Sundæfing fyrir 2014 og eldri Sunddeild Austra, Eskifirði
Kl. 16:30: Sundæfing fyrir 2015-2017, Sunddeild Austra, Eskifirði
Kl. 17:00: Göngufélag Suðurfjarða bíður í göngu, Mæting við tjaldsvæðið á Fáskrúðsfirði
Kl. 17:00: Glíma í íþróttahúsinu á Reyðarfirði fyrir 5. bekk og eldri
Kl. 17:30: Opin Þrek tími, Eyrin Reyðarfirði
Kl. 20:00 – 22:00: Opið Hús í Pílu á Gömlu Eskjuskrifstofunni, Eskifirði
Föstudaginn, 27. september
Kl. 08:45: Janus býður 65 ára og eldri í Íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði
Kl. 10:00: Janus býður 65 ára og eldri í Fjarðabyggðarhöllina, Reyðarfirði
Kl. 11:15: Janus býður 65 ára og eldri í Íþróttahúsið í Neskaupstað
Kl. 16:30: Opin Þrek tími, Eyrin Reyðarfirði
Kl. 17:00 - 19:00: Sundlaugarpartý í Neskaupstað með DJ Tonytjokko!
Laugardaginn, 28. september
Kl. 06:00-18:00: Maraþonsund Þróttar í Neskaupstað. Öll áhugasöm hvött til að koma í laugina og synda nokkrar ferðir með iðkendum Þróttar sem ætla að athuga hversu marga km næst að synda á 12 klst. Hve mikið syndi ég í hreyfivikunni? Skràningarblöð munu liggja frammi í sundlauginni alla vikuna þar sem öll geta skráð hversu mikið þau synda yfir vikuna. Verðlaun verða veitt þeim sem synda mest. Áhugasamir sundmenn geta prófað æfingar hjá sunddeild Þróttar yfir vikuna sér að kostnaðarlausu. Þróttur vekur athygli á garpasundi á mánudögum og fimmtudögum fyrir fullorðna kl. 17. Öll velkomin.
Kl. 11:00: Fótboltaskóli KFA & FHL Fjarðabyggðarhöllin
Kl. 11:00: Karfa í Íþróttahúsi Rey, 6.-8. bekkur