Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar að ráða stuðningsfjölskyldur í barnavernd og í fötlunarmálum.
Tilgangur með stuðningsfjölskyldu er að draga úr álagi á heimili barna, veita börnum tilbreytingu og stuðning auk þess að gefa þeim kost á auknum félagslegum tengslum. Um er að ræða 1-2 helgar í mánuði þar sem börnin dvelja á heimili stuðningsfjölskyldunnar.
Greiðslur til stuðningsfjölskyldu eru verktakagreiðslur.
Nánari upplýsingar veita:
Barnavernd: Rakel Kemp Guðnadóttir, ráðgjafi, rakel.k.gudnadottir@fjardabyggd.is
Fötlunarmál: Svanhvít Aradóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi, svanhvit@fjardabyggd.is