Í Neskaupstað eru miklar framkvæmdir í gangi og allir iðnaðarmenn hafa meira en nóg að gera langt fram á næsta ár.
16.06.2015
Framkvæmdir í Neskaupstað
![Framkvæmdir í Neskaupstað Framkvæmdir í Neskaupstað](/media/leikskoli-sokkull.jpg?w=600)
Á Neseyri er Fjarðabyggð að byggja nýjan átta deilda leikskóla og einnig er verið að leggja nýja útrás frá bökkum og út í sjó á Neseyrinni en með því leggst svokölluð fallbyssa af.
Byggingarfélagið Nes er að byggja fjögurra íbúða raðhús á Sæbakka.
Í miðbænum er Nestak að byggja við Hafnarbraut 15, þar sem Lyfja er til húsa. Þegar viðbyggingin er tilbúin mun Vínbúðin einnig verða þar til húsa.
Framkvæmdir við ofanflóðavarnir í Tröllagili eru að taka enda og stefnir verktaki á að ljúka verkinu í byrjun ágúst.