Þann 27. september síðastliðinn voru framkvæmdir við Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði boðnar út.
28.04.2017
Framkvæmdir við Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði
![Framkvæmdir við Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði Framkvæmdir við Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði](/media/img0254-640x480.jpg?w=600)
Verktakinn sem hlaut verkið var MVA á Egilsstöðum og er hann nú á fullu í framkvæmdunum sem felast í því að verið er að byggja bryggju framan við nýja frystigeymslu. Bryggjan er úr forsteyptum einingum sem komið er fyrir á stálstaurum.
Verkið gengur vel og er samkvæmt áætlun. Á myndinni sem fylgir má sjá frá framkvæmdunum.