mobile navigation trigger mobile search trigger
11.05.2015

Fyrsta samflotið á Austurlandi

Fyrsta „samflotið“ á Austurlandi fór fram í Sundlaug Norðfjarðar í gær. Var þessi áhugaverða slökunaraðferð kynnt í tengslum við styrktargöngu Göngum saman.

Fyrsta samflotið á Austurlandi

Samflot eða Float byggir á búnaði sérstaklega gerðum fyrir djúpslökun í vatni. Búnaðurinn samanstendur af flothettu og fótfloti og er hannaður af Unni Valdísi Kristjánsdóttur.

Notkun á flotbúnaði og samfloti, þar sem fleiri koma saman og láta sig fljóta á vatni, hefur verið að breiðast hratt út sem einföld aðferð fyrir aukna líkamlega og andlega vellíðan. 

Fyrsta samflotið á Austurlandi var skipulagt í tengslum við styrktargönguna Göngum saman í Neskaupstað. Fenginn var búnaður fyrir fimm að láni frá framleiðanda og er öllum heimilt að prófa búnaðinn næstu daga sér að kostnaðarlausu, áður en honum verður skilað.

Milligöngu hafði Hildur Ýr Gísladóttir, námsráðgjafi og einn af skipuleggjendum göngunnar í Neskaupstað. Í kynningu framleiðanda segir m.a. að slökunar og endurnærandi máttur vatnsins sé vel þekkt staðreynd. Streituvaldandi efni, líkt og adrenalín og kortisól, víkja fyrir vellíðunarhormónunum endorfíni og beta endorfíni sem er verkjastillandi. Við notkun flotbúnaðarins nái ekkert utanaðkomandi áreiti að trufla þann sem flýtur. 

Nánar um flotbúnaðinn

Heimasíða Float

Frétta og viðburðayfirlit