Ásmundur Hálfdán Ásmundsson varði titilinn glímukóngur Íslands um nýliðna helgi.
26.03.2019
Glímukóngur Íslands
![Glímukóngur Íslands Glímukóngur Íslands](/media/asmundur-halfdan-ithrottamadur-2016-71.jpg?w=600)
Alls tóku fimm keppendur frá UÍA þátt í Íslandsglímunni. Hjörtur Elí Steindórsson UÍA varð í öðru sæti í karlaflokki en hann vann jafnframt Hjálmhornið fyrir fallegustu glímurnar. Marta Lovísa Kjartansdóttir varð síðan í 3. sæti í kvennaflokki. Úrslit má nálgast hér.