mobile navigation trigger mobile search trigger
08.10.2024

Götulýsing í Fjarðabyggð

Að venju hefur ábendingum sem varða götulýsingu í Fjarðabyggð fjölgað að undanförnu í takt við það að dagana er tekið að stytta. Upp á síðkastið hefur verið unnið að lagfæringum á kerfinu og einnig er verið að skipta um þær perur sem vantar.

Götulýsing í Fjarðabyggð

Verið er að stilla götulýsingu af í Fjarðabyggð fyrir veturinnn. Í þeirri vinnu getur orðið vart við ljósleysi við einstaka götur eða hverfi, þegar slík tilvik koma upp er brugðist við þeim eins fljótt og hægt er. Unnið er að viðgerð við Bakkana í Neskaupstað þar sem ljóslaust er, gert er ráð fyrir að lýsing verði komin í lag á morgun.
Við hvetjum íbúa til að senda okkur ábendingu í gegnu ábendingakerfi Fjarðabyggðar ef vart verður við ljósleysi.

Frétta og viðburðayfirlit