Undanfarið hafa borist ábendingar til Fjarðabyggðar vegna hraðaksturs á götum byggðakjarna sveitarfélagsins. Að því tilefni er rétt að benda á hámarkshraði innan þéttbýlismarka í Fjarðabyggð er 40 km/klst. nema að annað sé tekið fram.
09.07.2020
Hámarkshraði innan þéttbýlismarka í Fjarðabyggð
Ábendingum varðandi þetta hefur fjölgað mikið undanfarið, enda umferð gangandi og hjólandi vegfarenda oft meiri á sumrin. Fjarðabyggð beinir þess vegna þeim tilmælum til ökumanna að virða uppgefinn hámarkshraða. Eins er rétt að minna á mikilvægi þess að virða hraðatakmarkanir á framkvæmdasvæðum.