Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi á miðnætti föstudaginn 30. október. Allar takmarkanir ná til landsins alls. Vegna þessa þarf Fjarðabyggð að gera breytingar þjónustu stofnanna á má kynna sér það hér að neðan.
Hertar sóttvarnarráðstafanir - breytingar á þjónustu Fjarðabyggðar
Tillögurnar voru kynntar á blaðamannafundi í Hörpu í dag kl. 13:00 og helstu breytingar eru þessar:
- 10 manna fjöldatakmörk - meginregla.
- 50 manna hámarksfjöldi í lyfja- og matvöruverslunum, en reglur um aukinn fjölda með hliðsjón af stærð húsnæðis.
- Fjöldatakmarkanir gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug eða störf viðbragðsaðila.
- Krám og skemmtistöðum verður lokað.
- Sundlaugum verður lokað.
- Veitingastaðir með vínveitingaleyfi mega ekki hafa opið lengur en til kl. 21.00.
- Grímuskylda þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðarmörk, milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
Nánari upplýsingar má nálgast á vef Heilbrigðisráðuneytisins með því að smella hér.
Þessar ráðstafanir munu óhjákvæmilega hafa áhrif á þjónustu Fjarðabyggðar.
- Sundlaugar og íþróttamannvirki Fjarðabyggðar munu loka frá með laugardeginum 31.10.2020.
- Allt íþrótta – og æskulýðsstarf í Fjarðabyggð leggst niður frá og með laugardeginum 31.10.2020.
- Ljóst er að takmarkanir munu hafa áhrif á skólastarf, sérstaklega í grunnskólum. Unnið er að útgáfu reglugerðar varðandi skólastarf og munu tilkynningar varðandi breytingar á því verða gefnar út um leið og reglugerðin liggur fyrir.
- Ákveðið hefur verið að starfsdagur verði í öllum grunnskólum Fjarðabyggðar mánudaginn 2. nóvember, til að gefa skólunum tækifæri til að skipuleggja starfsemi sína.
- Foreldrar eru beðnir um að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu Fjarðabyggðar og í tölvupósti um helgina varðandi aðra tilhögun skólastarfs.
- Mánudaginn 2. nóvember mun þjónusta leikskóla og tónlistarskóla verða óbreytt.
- Fólk er beðið um að nýta sér rafræna möguleika til að hafa samskipti við sveitarfélagið og starfsmenn sé þess nokkur kostur. Er þar sérstaklega bent á íbúagátt Fjarðabyggðar.
- Á hjúkrunarheimilum Fjarðabyggðar er unnið eftir ströngum sóttvarnarreglum og í gildi eru sérstakar reglur um heimsóknir aðstandenda. Aðeins einn aðila má heimsækja íbúa, alltaf sá sami, einu sinni á dag milli kl. 15:00 og 17:00.
Allar upplýsingar og tilkynningar verða settar inn á www.fjardabyggd.is og fésbókarsíðu sveitarfélagsins, um leið og þær liggja fyrir. Á heimasíðu Fjarðabyggðar hefur verið sett upp sérstök upplýsingasíða þar sem hægt verður að fylgjast með öllum tilkynningum sem Fjarðabyggð sendir frá sér á meðan þetta ástand varir. Einnig er bent á heimasíðu Landlæknisembættisins og www.covid.is þar sem allar upplýsingar er að finna.
Gott hefur verið að finna þá miklu samstöðu sem einkennt hefur viðbrögð okkar allra í þessum faraldri. Framundan eru eflaust fleiri áskoranir sem koma til með að reyna á allt samfélagið. Þá er gott til þess að vita að Fjarðabyggð hefur á að skipa úrvalsfólki í öllum stofnunum. Við munum öll leggja okkar af mörkum til að þessar breytingar gangi eins vel og mögulegt er í okkar góða samfélagi.
Þetta er verkefni sem við tökumst á við saman og munum að það vorar að nýju og þetta ástand gengur yfir!