mobile navigation trigger mobile search trigger
21.08.2024

Í kjölfar hörmulegs slyss við Hálslón

Í kjölfar hörmulegs slyss við Hálslón í gær vill Fjarðabyggð koma eftirfarandi á framfæri. Samfélagið á Austurlandi er í sameiningu að takast á við mikið áfall, og vinna úr því. Með samfélögunum koma að áfallaviðbragðinu margir aðilar s.s. prestar, HSA, Rauði Krossinn, sveitarfélögin og aðrir sérfræðingar.

Í kjölfar hörmulegs slyss við Hálslón

Við bendum á að Hjálparsími Rauða Krossins er opinn allan sólarhringinn í síma 1717.  Þá er einnig hægt að fá samband við geðheilbrigðisteymi HSA með því að senda póst á netfangið afallahjalp@hsa.is, hafa samband við presta í gegnum netfangið afallahjalp@kirkjan.is  eða hafa samband við félagsþjónustu Fjarðabyggðar í síma 4709000 eða með því að senda póst á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is.

Minningarstund verður haldin í Norðfjarðarkirkju á morgun fimmtudaginn 22. ágúst kl 18:00 og kyrrðarstund verður í Heydalakirkju í Breiðdal í kvöld, miðvikudaginn 21. ágúst kl. 20:00. Auk þess hafa prestar boðið upp á samtöl við þá sem eiga um sárt að binda í Norðfjarðarkirkju í dag, og munu gera það áfram á morgun.

Frétta og viðburðayfirlit