Kjötbollur eru um það bil besti matur í heimi.
Þess vegna var dagurinn í dag afar góður hjá yngsta stiginu í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli. Þau nefnilega grilluðu kjötbollur við útikennslustofuna í morgun og fengu svo kjötbollur í matinn í hádeginu hjá henni Ingu sem rekur okkar frábæra mötuneyti.
Hvítlauksbrauð er á pari við kjötbollur hvað gæði og bragð varðar og því var það líka grillað í morgun.