Bæjarráð Fjarðabyggðar sendir Seyðfirðingum og sveitarfélaginu Múlaþingi, hlýjar kveðjur í kjölfar þeirra hörmulegu atburða sem átt hafa sér stað undanfarna daga á Seyðisfirði.
22.12.2020
Kveðjur til íbúa Seyðisfjarðar
![Kveðjur til íbúa Seyðisfjarðar Kveðjur til íbúa Seyðisfjarðar](/media/eac0b28771616888.jpg?w=600)
Náttúruöflin verða ekki tamin en mikil mildi er að ekki varð manntjón í þessum miklu náttúruhamförum. Mikið verkefni er fram undan við endurreisn bæjarins og mannlífsins á Seyðisfirði og bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð lýsa sig reiðubúin til að veita alla þá aðstoð sem í þeirra valdi stendur, í því uppbyggingarstarfi sem nú tekur við.