Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Fjarðarbyggðar í Þernunesi.
Tillagan verður aðgengileg á vefsíðu Umhverfisstofnunar á tímabilinu 28. nóvember 2019 til og með 3. janúar 2020 og gefst á þeim tíma tækifæri til að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.
Tillöguna má sjá með því að smella hér:
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 3. janúar 2020.