Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 er til komin vegna breyttrar landnotkunar innan reits I1 á Stöðvarfirði þar sem gert er ráð fyrir íbúðum ofan Sævarenda.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Fjarðabyggðar að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði og í þjónustugátt í bókasöfnum á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði og Norðfirði til 2. mars 2017.
Nánari upplýsingar veitir skipulags- og byggingarfulltrúinn í Fjarðabyggð í síma 470-9000 eða á netfangið byggingarfulltrúi@fjardabyggd.is