Kynning vegna tillögu að deiliskipulagi Skíðasvæðisins í Oddsskarði
Deiliskipulagstillagan nær til 86,4 ha afmörkunar Skíðasvæðisins í Oddsskarði þar sem gert er ráð fyrir skíðalyftum, skálum og annarri tengdri mannvirkjagerð.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Fjarðabyggðar að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði og í skíðaskálanum í Oddsskarði til 27. apríl 2018.
Hægt er að sjá uppdrátt að deiliskipulagstilllögunni hér.
Greinargerð og umhverfisskýrslu með tillögunni má finna hér.
Hægt er að koma ábendingum og fyrirspurnum til skipulags- og byggingarfulltrúa Fjarðabyggðar í síma 470-9000 eða á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is