mobile navigation trigger mobile search trigger
26.08.2024

Minningarstund í Norðfjarðarkirkju þriðjudaginn 27. ágúst

Minningarstund verður haldin í Norðfjarðarkirkju á morgun þriðjudaginn 27. ágúst l 18:00. Að lokinni þeirri stund verður síðan opið í áfallamiðstöðinni í Egilsbúð þar sem fólk getur komið, fengið samtal og sálrænan stuðning.

Minningarstund í Norðfjarðarkirkju þriðjudaginn 27. ágúst

Við bendum á að Hjálparsími Rauða Krossins er opinn allan sólarhringinn í síma 1717. Þá er einnig hægt að fá samband við geðheilbrigðisteymi HSA með því að senda póst á netfangið afallahjalp@hsa.is, hafa samband við presta í gegnum netfangið afallahjalp@kirkjan.is  eða hafa samband við félagsþjónustu Fjarðabyggðar í síma 470 9000 eða með því að senda póst á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is.

Frétta og viðburðayfirlit