Vel er liðið á marsmánuð og það sem af er mánuði hafa þó nokkrar mottur sprottið fram í þágu málstaðarins. Þessir flottu naglar eru (f.v.) Valur Sveinsson, skipulags- og byggingarfulltrúi, Ívar Örn Þórðarson, eigna- og framkvæmdafulltrúi, Stefán Ingvar Stefánsson, bókari og Marinó Stefánsson, sviðsstjóri framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs.
18.03.2016
Mottumars á bæjarskrifstofu
Fleiri glæsilegar mottur eru í spretti á bæjarskrifstofunni og verður spennandi að sjá heildarárangurinn síðar í mánuðinum.