Hafnarsjóður Fjarðabyggðar hefur tekið tilboði frá verktakanum Hagtak ehf. Kostnaðaráætlun var kr. 122.148.300.- en samningupphæð samkvæmt tilboði er kr. 108.250.000.-
20.03.2019
Neskaupstaður togarabryggja endurbygging 2019
Helstu verkþættir eru:
- Brjóta of fjarlægja kant, polla og þekju af núverandi bryggju.
- Reka niður 180 stk. tvöfaldar stálþilsplötur og ganga frá stagbitum og stögum.
- Jarðvinna, uppúrtekt, fylling og þjöppun.
- Steypa um 140 m. langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
Fyrsta áfanga skal lokið að fullu fyrir 1. júlí 2019. Öðrum áfanga, að ljúka verkinu í heild, skal lokið eigi síðar en 31.ágúst 2019.
Um er að ræða miklar endurbætur og er verkefnið eitt það stærsta sem ráðist verður í á árinu 2019 í sveitarfélaginu.