Niðurstöður úr sýnatöku HSA um síðustu helgi í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu liggja nú fyrir staðfestar. Tekin voru 1415 sýni og reyndust öll neikvæð.
10.04.2020
Niðurstöður komnar úr skimun ÍE og HSA
![Niðurstöður komnar úr skimun ÍE og HSA Niðurstöður komnar úr skimun ÍE og HSA](/media/covid-19.png?w=600)
Þetta eru góðar fréttir en undirstrika um leið mikilvægi þess að halda vöku sinni og einbeitingu. Lítið má út af bregða eins og dæmin sanna og áréttað hefur verið í fjölmiðlum meðal annars og af stjórnendum Heilbrigðisstofnana nú nýverið. Förum því varlega og fylgjum leiðbeiningum áfram og líkt og við höfum gert fram til þessa.
Gerum þetta saman