Nýbakaðir foreldrar í Fjarðarbyggð þurfa ekki að óttast bleyjuskort og fleira því nú hefur Kjörbúðin sem er í eigu Samkaupa í samstarfi við sveitafélagið Fjarðarbyggð tekið höndum saman.
Nýbakaðir foreldrar í Fjarðabyggð fá gjafir
„Fjarðabyggð er stolt af því að fá að taka þátt í þessu verkefni með Samkaupum og vera þar með fyrsta sveitarfélagið til þess. Fjarðabyggð er barnvænt sveitarfélag þar sem börn komast í leikskóla eftir fyrsta aldursár og viljum við gera vel á fyrstu vikum barns með því að létta undir og stuðla að jákvæðri upplifun meðal nýbakaðra foreldra,” segir Haraldur Líndal Haraldsson, upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar.
Vöggugjöfin inniheldur nauðsynjavörur fyrir fyrstu vikurnar í lífi barns og foreldra, svo sem bleyjur, blautþurrkur, bossakrem, snuð, lekahlífar, brjóstakrem, barnaolíu og bómull. Hugmyndin að vöggugjöf Kjörbúðarinnar byggir á barnsburðarpökkum af svipuðum toga sem þekkjast víða erlendis og innihalda nauðsynjavörur fyrir nokkrar vikur og allt upp í fyrstu mánuðina í lífi barns.
Slíkar vöggugjafir hafa notið mikilla vinsælda þar sem þær eru í boði og að sama skapi hlotið töluverða athygli hér á landi.
„Kjörbúðin rekur þrjár verslanir í sveitarfélaginu; á Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Neskaupstað. Vöggugjöfin er okkar framlag til þess að bjóða nýjustu íbúa Fjarðabyggðar velkomna í heiminn. Við vitum að það er að mörgu að huga fyrstu vikurnar í lífi barns og okkur finnst auðvitað dásamlegt að geta létt undir með fjölskyldum með þessum hætti. Við höfum í gegnum tíðina átt í góðu samstarfi við Fjarðabyggð, og það er frábært að taka þetta stóra skref saman,“ segir Bergrún Ósk Ólafsdóttir, verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Samkaupum.
„Við viljum að íbúum í nágrenni Kjörbúða líði vel og upplifi öryggi með aðgengi að nauðsynjavörum. En við erum oftar en ekki eina verslunin í þeim bæjum þar sem við störfum og leggjum alltaf höfuðáherslu á að sinna því hlutverki vel, ekki einungis sem matvöruverslun, heldur einnig sem þátttakandi í samfélaginu. Því finnst okkur dýrmætt að fá að styðja við vaxandi fjölskyldur í okkar næsta nágrenni og vonum að gjöfin komi að góðum notum,” bætir Bergrún við.